Helgin að koma

Helgin alveg að koma, ji hvað ég hlakka til. Ég sendi Birtu til Reykjavíkur og kemur hún ekki heim fyrr en á þriðjudag. Vetrarfrí í skólanum og eitthað þarf að gera til að redda því og hvað er betra en að skella ábyrgðinni á einhvern annan.

Snorri fer svo að vonna á morgun og þá verð ég ein með litlu skottunni. Við erum að passa lítinn kettling af neðri hæðinni en annars erum við bara 2 fram á þriðjudag.

Það er átak í vinnunni hjá mér að selja líf-og sjúkdómatryggingar og eru verðlaun fyrir þá söluhæðstu svo ef það er einhver í þeim hugleiðingum að fá sér slíkar tryggingar eða að fá tilboð í þær þá endilega bjalla á mig og ég redda því.

En svona fyrir þá sem ekki vita þá eru 61 dagur til jóla og ég get ekki beðið efir því. Ég fæ 9 daga frí og svo vinna í 2 og svo aftur frí í 2 daga og strax þar á eftir er helgi. Við förum til Reykjavíkur um jólin og verðum með íbúð á leigu frá VR í Ljósheimum. Ég hlakka svo til að hitta alla familíuna og fá góðan mat og slappa af.

Svo ætlum við að kíkja í heimsókn til Rósu okkar á Flúðum og hitta nýju fjölskylduna hennar. Ég hef ekki miklar áhyggjur af því að hún sé döpur þarna. Konan sem tók hana að sér er búin að vera í símasambandi við mig nokkrum sinnum og lætur mig vita hvernig gengur og ég held ég hefði ekki geta komið henni á betra heimili. Það er samt soldið skrítið að hafa hana ekki heima, meiri tími til að slaka á en á móti fer ég ekki eins mikið út. Ég þarf bara að vera duglegri að koma mér út með litlu skottuna.

En ég nenni ekki mikið að krota hérna þessa dagana enda kannski ekki mikið að gerast hérna. Ég er komin á facebook og er eitthvað að skoða þar inni. Ég hef samt ekki verið  þekkt fyrir það að vera lengi á sama staðnum en ég ætla nú ekki að loka á þessa síðu strax en ég veit ekki hversu oft ég nenni að láta vita af mér

 

 


Hvað næst

Ég veit ekki hvað gerist næst. Ef ég geri ráð fyrir að við Snorri höldum okkar vinnu þá kannski reddast þetta. Við vorum búin að sjá fram á það áður en þetta allt fór til fjandans að Rósa okkar færi á annaðheimili svo við þurfum ekki að hafa miklar áhyggjur af henni. Hún fer vonandi á mánudag til nýrra eigenda. Við vonum bara að við getur staðið í skilum á 2 lánum sem var skrifað upp á. Getum ekki hugsað okkur að láta falla á einhvern annan í svona aðstæðum.

Ef allt fer til fjandans þá sagði mamma að bílskúrinn væri tilbúinn og það væri alveg pláss fyrir okkur þar. Vona samt að það komi ekki til þess


Allt að fara til fjandans

Já og nú er Kaupþing farið á hausinn. Þá er vinnan mín komin í hættu og hvað gera Björgólfsfeðgar. Það sást til þeirra fylla flugvélina farangri og fljúga út í buskann. Kannski að það sé eitthvað sem við ættum að gera líka. Fara bara úr langi og skilja lyklana eftir af öllum skuldunum.....

En ef Davíð væri seðlabankastjóri í einhverju öðru landi en hér. þá væri hann líka flúinn land við ótta við að verða settur í fangelsi eða eitthvað verra. Hvenær á að koma manninum frá völdum. Hann náðu með þessu viðtali í kastjósi að setja það litla sem eftir var á hausinn. Samt kom hann voða vel úr þessu viðtali. Hann er bara svo rosalega góður í að selja sjálfan sig að sumir hafa litið fram hjá klúðrinu hans.   Stejum Davíð af sem seðlabankastjóra.


mbl.is Atburðir í Bretlandi felldu Kaupþing
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólaplönin

Snjórinn er að komin hálfa leið niður fjallið og til bæja. Ég er ekki alveg sátt við þetta. Snjórinn en heilum mánuði og snemma miðað við árið í fyrra.

 

En já við hjúin erum búin að panta íbúð í bænum frá 21. des til 28.des. Komum kannski 19. eða 20. des en a.m.k. þessa viku. Við vorum búin að ákveða það að vera hérna heima en einhvern vegin þá togar fjölskyldan í mann. Við erum samt ekkert ægilega spennt fyrir því að vera um áramót. Rósa fengi sennilega hjartaáfall hvort eð er. Hún var svo taugaveikluð hérna í sumar þegar það kom smá sýning á frönsku dögum.

 

Hugsunin um að það sé föstudagur er búin að vera föst í huga mínum alla vikuna. Það styttist í hann..............


Ölvunarakstur

Það er eitthvað sem ég skil ekki, og sérstaklega eftir þessa helgi. Tvítug stelpa sem ég þekki var á djamminu um helgina. Missti af vinum sínum vegna þess að hún sofnaði. Þegar hún vaknar ákveður hún að taka bara bílinn þrátt fyrir ástand sitt og ekur af stað. Hún ekur útaf, með farþega, hún er með 3 brotna hryggjaliði. Læknar telja samt góðar líkur á að hún gangi aftur þar sem þeir telja hana hafa sloppið við mænuskaða. Hún hefur samt ekki mátt fyrir neðan hné.

Hún mátti ekki missa af ballinu. Hverju ætli hún missi af núna. Ekki fer hún mikið á djammið með brotið bak.

 Hverju ætli hún hefði misst af hefði farið verr.

 Hún vildi bara vera með.

Hvað fer í gegnum hausinn á fólki sem gerir þetta????


Vetur

Það er komin snjór í toppana á fjöllin.Bara svona ef það vissu það ekki allir. Það er sem sagt að koma vetur. Brrrrr

Bloggleti eða kannski bara gúrkutíð

Ég veit ekki hvort það er en það er a.m.k. ekki mikið að frétta héðan úr sveitinni. Ég er að spá í að fá lánaða gömlu saumavélina hjá mömmu. Þetta er 33 ára gömul pfaff vél sem hefur örugglega þjónað mömmu minni vel. Hún liggur núna bara inn í skáp hjá henni og leiðist svo ég ætla að fá hana lánaða og föndra smávegis. Hún þarf samt að fara í smá þrif og smurningu og kostar það kannski 7000 kall en ég held að það sé dýrara að kaupa vél.

Birta og Ísak eru ennþá óaðskiljanleg. Við mömmurnar höfum smá áhyggjur að þau séu búin að gleyma hinum vinum sínum því þau leika sér bara 2 saman. En svo fá þau leið á hvort öðru einn og einn dag og tala viðhina krakkana og svo hittast þau aftur. Ísak er að fara í smá ferð í bæinn þessa helgina svo ég hugsa að Birta verði ansi vængbrotin á meðan.

Við Aþena erum duglegar að finna okkur eitthvað að gera. Í dag fórum við og þrifum bílnn hans Snorra. Ekki var vanþörf á, ég held hann hafi ekki verið þrifin almennilega síðan hann fékk bílinn fyrir 2 árum. En þar sem bílinn minn er á bílasölu næstu daga þá verð ég að skrölta á þessum bíl og hann fékk smá þrif. Ég var á bílnum í gær og löggan stoppaði mig vegna þess að hann var eineygður. Ég skammaðist mín svo fyrir draslið í bílnum að ég læt það ekki gerast aftur.

Snorri er eitthvað að gæla við að fara í bæinn um jólinn. Taka þá 2 daga frí í vinnunni sem eru á milli jóla og nýárs og vera þá um 8 daga í bænum. Ég er ekki alveg búin að taka ákvörðun um þetta. Sé aðeins til. Ég er ekki alveg að nenna þessu eins og í fyrra. Kannski ef mamma verður á landinu.


Alveg að rísa upp úr rekkju

Ég er búin að liggja í vibba pest síðan á föstudaginn. Það var auðvita líka helgin hans Snorra í bænum svo ég er búin að vera ein með 3 brjálæðinga. Það þarf ekki að taka það fram að íbúðin okkar var ekki falleg þegar Snorri kom heim á þriðjudaginn.   'Eg var ekki búin að hafa orku til að setja í uppþvottavél síðan á laugardag. Það eina sem ég gerði var að setja í þvottavél um leið og ég varð að fara með hundinn út. Það er líka frekar strembið að vera með 2 krakka og vera raddlaus. Ég var mikið í því að smella fingrum, klappa og benda. Það vikaði furðulega oft og þurfti ég lítið að reyna á röddina, sem var alveg hræðilega lítil.

Þetta er samt allt að skríða saman. Hitinn búinn að lækka frá 40° í 38°. Snorri komin heim og búin að ganga frá leirtauinu. Ég kemst vonandi í vinnu á morgun.

Veðrið hér er ansi leiðinlegt. Við vöknuðum í nótt við að gluggi fauk upp. Ég hafði ekki lokað honum almennilega. Svo var hundurinn eitthvað stressuð og var mikið á ferðinni. Henni er svo illa við svona veður að þegar ég setti hana út í morgun þá þurfti ég að loka hurðinni og reka hana út á gras því hún ætlaði ekki út. Hún er svo mikil gunga þrátt fyrir að bera það ekki með sér.

 


Fíkniefni í felum

Allt er til í þessum bransa. Ég heyrði það fyrir mörgum árum að skemmtistaður einn væri með aðgöngumiða sem í væri LSD og skilirði fyrir inngöngu væri að borða miðann..... Þetta var einhversstaðar í útlöndunum. Ég vona að svona sé ekki til hérna á litla Íslandi


mbl.is Fíkniefni seld í sælgætisverslun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heiðarleiki

Ég fékk símtal áðan. Það var strákur að spyrja mig hvort ég hefði týnt síma í sumar. "já, er hann bleikur?"  jú hann var það. Hann fannst í sófa í íbúð sem Snorri tók á leigi í R.V í sumar. Vá hvað ég þakkaði þessum strák  mikið fyrir að vera svona heiðarlegur.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Begga
Begga

Tveggja barna móðir og eiginkona á austurlandi.

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband